Skip to Content

INDRIÐAVERÐLAUNIN

Fatahönnunarfélag Íslands veitti Indriðaverðlaunin í fyrsta sinn á opnun 10 ára afmælissýningar félagsins í Gerðarsafni laugardaginn 8. október kl.17. Verðlaunin verða veitt annað hvert ár þeim fatahönnuði sem þykir hafa skarað fram úr. Verðlaunin eru kennd við klæðskerann Indriða Guðmundsson, heitinn, sem þekktur var fyrst og fremst fyrir gæði og fagmennsku. Í ár hlýtur sá fatahönnuður Indriðaverðlaunin sem þykir hafa skarað fram úr á árunum 2009-2011.

Við val á hönnuði er litið til gæða hönnunarinnar allt frá hugmyndafræði til frágangs. Þegar kemur að góðri fatahönnun þarf ákveðið jafnvægi að ríkja milli sköpunargleðinnar og hins verklega. Hönnunarvinnan sem fer í hverja fatalínu er mikil og ferlið margslungið. Fjölmörg atriði koma við sögu í hönnunarferlinu, bæði stór og smá, en öll eru þau mikilvæg til að skapa vel heppnaða heildarmynd.

Epal styður Indriðaverðlaunin með hönnun og gerð sérstaks verðlaunagrips.

Meginmarkmið

Með verðlaununum vill Fatahönnunarfélag Íslands veita hönnuðum viðurkenningu fyrir starf  sitt og framlag til íslenskrar fatahönnunar og beina ljósi að því besta sem er að gerast í íslenskri fatahönnun hverju sinni. Verðlaunin eiga að auka vitund og virðingu fyrir íslenskri fatahönnun.

Indriði Guðmundsson

Indriði var mikill talsmaður fatahönnunarverðlauna á Íslandi. Honum þótti mikilvægt að félagið ætti sína eigin uppskeruhátið þar sem félgsmenn hittust, ræddu málin og fögnuðu saman.

Indriði var fagmaður fram í fingurgóma og helgaði sig leitinni að hinu fullkomna sniði. Hann lagði gríðarlega áherslu á gæði og fagmennsku og eins og hann lýsti sjálfur seldi hann ekki skyrtur, heldur uppáhaldsskyrtur. Hann sagðist leitast við að gera fullkomnar flíkur, fjöldaframleiddi eftir gömlum aðferðum og bar mikla virðingu fyrir handverkinu ásamt sköpunarferlinu sjálfu.

Indriði lagði auk þess mikið upp úr efnisvali. Gott dæmi um það eru bindin hans, en hann framleiddi 14 tegundir af svörtum bindum og lá munurinn á þeim í vefnaðinum.

Ferill Indriða

Indriði kenndi klæðskurð við Iðnskólann í Reykjavík árin 1994-2000 og síðar við Listaháskóla Íslands. Árið 1995 fór hann til Dublin og nam hjá Des Leech, heldri manna klæðskera, en þar skrifaði hann kennslubók í efnisfræðum. Á þessm árum vann hann einnig sem klæðskeri fyrir kvikmyndir eins og Bíódaga, Djöflaeyjuna og Benjamín dúfu ásamt búningagerð fyrir Þjóðleikhúsið, leikhópinn Augnablik og Hinn Íslenska dansflokk.

Árið 2000 hóf Indriði störf sem sjálfstætt starfandi sniðagerðarmaður fyrir íslenska hönnuði og verslanir. Má þar nefna Spakmannsspjarir, ELM og GK. Indriði var einn af stofnendum Fatahönnunarfélags Íslands..

Árið 2003 stofnaði Indriði verslun við Skólavörðustíg í Reykjavík. Þar verslaði hann með skyrtur og annan herrafatnað sem framleiddur var undir hans eigin nafni. Árið 2006 flutti hann verslun sína til Kaupmannahafnar og rak hana þar til hann lést þann 30. desember sama ár.

Fyrirkomulag

Fimm manna dómnefnd, sem skipuð er af stjórn Fatahönnunarfélags Íslands, velur verðlaunahafann. Skilyrði er að meirihluti dómara séu hönnuðir. Dómnefndin skilar inn skriflegum niðurstöðum þar sem rök eru færð fyrir valinu.

Við val á hönnuði er litið til þeirra fatahönnuða sem eru með heilsteyptar fatalínur, hafa verið virkir á árunum 2009 og 2010 og þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Verðlaunin eru innblásin af starfi Indriða Guðmundssonar og því eru gæði og fagmennskalykilorð við val hönnuðar, hvort sem kemur að hugmyndum eða frágangi.

Dómnefnd 2011

Anna Clausen, stílisti.

Eyjólfur Pálsson, húsgagnaarkitekt, fyrir hönd Epal.

Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður og framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar
Íslands.

Linda Björg Árnadóttir, fatahönnuður og deildarstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla
Íslands.

Valgerður Helga Schopka, fatahönnuður, formaður Fatahönnunarfélags Íslands.